Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. október 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emre Can: Heiður að Juventus hafi áhuga
Mynd: Getty Images
Emre Can, miðjumaður Liverpool, segir að það sé heiður að lið eins og Juventus hafi áhuga á sér.

Samningur Emre Can við Liverpool rennur út næsta sumar en félagið neitaði að selja hann fyrir lok félagsskiptagluggans í sumar.

Juventus vildi kaupa hann, en Liverpool vildi ekki selja hann.

Það verður ólíklegra með hverjum deginum að Can skrifi undir nýjan samning hjá Liverpool, en Ítalíumeistarar Juventus munu líklega reyna að fá hann þegar samningur hans klárast næsta sumar.

„Það er heiður fyrir mig að svona sögufrægt félag hafi áhuga á mér, en ég er í augnablikinu að einbeita mér að tímabilinu með Liverpool. Umboðsmaður minn sér um allt hitt," sagði Can.
Athugasemdir
banner
banner
banner