Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. október 2017 17:30
Elvar Geir Magnússon
Framkvæmdastjóri Barcelona: Reynum aftur við Coutinho í janúar
Philippe Coutinho í leik með Brasilíu í nótt.
Philippe Coutinho í leik með Brasilíu í nótt.
Mynd: Getty Images
Oscar Grau, framkvæmdastjóri Barcelona, segir spænska stórliðið muni aftur reyna að kaupa Philippe Coutinho frá Liverpool í janúarglugganum.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir á liðnu sumri tókst Barcelona ekki að landa brasilíska landsliðsmanninum. Félagið reyndi að fá hann til að fylla skarð Neymar sem gekk í raðir Paris Saint-Germain fyrir metupphæð.

Coutinho fór fram á sölu og þremur tilboðum frá Barca var hafnað.

Grau segir að forráðamenn Barcelona hafi ekki gefist upp en Liverpool stendur fast á sínu og hefur ekki í hyggju að selja Coutinho á miðju tímabili.

„Við erum tilbúnir að kaupa Coutinho í vetrarglugganum eða hvern þann leikmann sem þjálfarateymið vill fá. En það er mikilvægast að aðlagast okkur sjálfum, ef það koma inn leikmenn þurfa aðrir að fara," segir Grau.

Coutinho hefur skorað í þremur síðustu leikjum Liverpool en liðið mætir Manchester United á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner