Í hverri viku verðlaunar EA Sports, framleiðandi FIFA-leikjanna vinsælu, fótboltamenn sem hafa verið að standa sig vel. Þessir leikmenn fá sérstakt spjald sem FIFA-spilarar þekkja sem „inform".
Í þessari viku er Kári Árnason á meðal þeirra leikmanna sem fá þetta svokallaða „inform" spjald.
Í þessari viku er Kári Árnason á meðal þeirra leikmanna sem fá þetta svokallaða „inform" spjald.
Kári hefur verið að spila vel með Aberdeen í Skotlandi og þá skilar hann alltaf sínu með íslenska landsliðinu. Hann var í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu sem tryggði sig inn á HM í fyrsta sinn.
EA Sports hefur fylgst vel með Kára og hefur verðlaunað hann.
Kári var sjálfur gríðarlega sáttur með þetta en lét þó vita að hann væri alveg til í að vera með meiri hraða.
Kári er aðeins með 40 af 99 í hraða.
Hér að neðan má sjá þetta, en Kári er þarna í hópi með Robert Lewandowski og Christian Eriksen og fleiri góðum.
Solid 40 pace, buzzing! https://t.co/rvbZARSTKv
— Kari Arnason (@karibestmeister) October 11, 2017
#TOTW 4 features 92 @lewy_official 🇵🇱; 86 @MATUIDIBlaise 🇫🇷 & 88 @ChrisEriksen8 🇩🇰!! #FIFA18 #FUT pic.twitter.com/POtixRIXQt
— EA SPORTS FIFA (@EASPORTSFIFA) October 11, 2017
Athugasemdir