Íslenska landsliðið tryggði sér sæti á HM í fyrsta skipti í sögunni á mánudagskvöld eftir 2-0 sigur á Kosóvó.
Leikmenn fögnuðu áfanganum á Petersen svítunni en þar fyrir utan voru fjölmargir stuðningsmenn landsliðsins mættir.
Leikmenn fögnuðu áfanganum á Petersen svítunni en þar fyrir utan voru fjölmargir stuðningsmenn landsliðsins mættir.
Jón Daði Böðvarsson, framherji íslenska landsliðsins, mætti út af staðnum til að heilsa upp á stuðningsmenn.
Jón Daði fékk „crowd surfing" áður en hann fór aftur inn á staðin en stuðningsmenn Íslands báru hann á höndum sér inn í anddyri staðarins.
Sjón er sögu ríkari en myndband af þessu hér að neðan.
Myndbandið er af Instagram síðu Fótbolta.net en þar birtast reglulega skemmtilegar myndir úr fótboltaheiminum.
Athugasemdir