Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. október 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar ánægður að Messi verði með á HM
Mynd: Getty Images
Neymar var ánægður að sjá að fyrrum liðsfélagi sinn, Lionel Messi, yrði með á HM í Rússlandi næsta sumar.

Neymar og Messi voru liðsfélagar hjá Barcelona en Neymar fór til Paris Saint-Germain í sumar.

Þrátt fyrir að Neymar hafi yfirgefið Barcelona í sumar eru hann og Messi engir óvinir. Neymar fór í viðtal eftir 3-0 sigur Brasilíu á Síle og sagðist þar ánægður með það að Messi og félagar í Argentínu yrðu með á HM. Messi skoraði þrennu í 3-1 sigri Argentínu á Ekvador, en Argentína þurfti nauðsynlega sigur í leiknum.

„Ég er ánægður fyrir hans hönd," sagði Neymar í viðtali eftir sigur Brasilíu á Síle í gærkvöldi.

„Ég er ánægður að vinur minn verði með í keppni sem er svona mikilvæg," sagði Neymar enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner