Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 11. október 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Viktor Örn framlengir við ÍR
Viktor í leik með ÍR í sumar.
Viktor í leik með ÍR í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örn Guðmundsson skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við ÍR.

Viktor skoraði þrjú mörk í 21 leik með ÍR í Inkasso-deildinni í sumar en hann kom til félagsins frá KV síðastliðinn vetur.

„Þessi magnaði miðjumaður var einn af lykilmönnum liðsins í sumar og því eru þessar fréttir einstaklega ánægjulegar," segir á Facebook síðu ÍR.

„Við hlökkum til að sjá Viktor í eldlínunni þegar nýtt tímabil rennur af stað."

Í haust var Viktor orðaður við félög í Pepsi-deildinni en nú er ljóst að hann verður áfram hjá ÍR. Þjálfaraskipti urðu hjá ÍR á dögunum en Brynjar Þór Gestsson tók við liðinu af Arnari Þór Valssyni.

Viktor er uppalinn FH-ingur en hann hefur einnig leikið með Fjarðabyggð, KA, Fylki og Víkingi R. á ferlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner