Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. október 2017 18:00
Magnús Már Einarsson
Walters frá keppni fram til áramóta
Mynd: Getty Images
Jon Walters, framherji Burnley, verður að minnsta kosti frá keppni fram til áramóta vegna þrálátra hnémeiðsla.

Hinn 34 ára gamli Walters kom til Burnley frá Stoke í sumar en hann hefur verið frá keppni síðan um miðjan ágúst.

Walters er í endurhæfingu vegna meiðslanna en hann á ennþá langt í land.

Það er ekki einungis slæmt fyrir Burnley heldur einnig fyrir landslið Íra.

Írar eru á leið í umspil um sæti á HM í næsta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner