Kyle Naughton, varnarmaður Tottenham, mun þurfa að afplána tveggja leikja bann eftir landsleikjahléið eftir að hafa fengið rautt spjald í 2-1 tapi liðsins gegn Stoke um helgina.
Tottenham áfrýjaði rauða spjaldinu, sem Naughton fékk fyrir að taka niður Victor Moses þegar framherjinn var kominn einn í gegn, en enska knattspyrnusambandið var sammála dómaranum Mike Jones.
Tottenham áfrýjaði rauða spjaldinu, sem Naughton fékk fyrir að taka niður Victor Moses þegar framherjinn var kominn einn í gegn, en enska knattspyrnusambandið var sammála dómaranum Mike Jones.
Í yfirlýsingu frá enska knattspyrnusambandinu kom að bannið tæki tafarlaust gildi, en þetta var annað raupa spjald Naughton á tímabilinu.
Hann mun því missa af leikjum Tottenham gegn Hull og Everton eftir landsleikjahlé.
Athugasemdir