Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   þri 11. nóvember 2014 17:47
Magnús Már Einarsson
skrifar frá Brussel
Jón Daði: Fæ gæsahúð í hvert einasta skipti
Icelandair
Jón Daði í viðtali við Fótbolta.net í dag.
Jón Daði í viðtali við Fótbolta.net í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég fæ gæsahúð í hvert einasta skipti sem ég heyri þjóðsönginn. Það er ævintýri að vera með í þessu," sagði Jón Daði Böðvarsson við Fótbolta.net í dag.

Jón Daði Böðvarsson hefur slegið í gegn með íslenska landsliðinu í byrjun undankeppni EM en hann kom óvænt inn í byrjunarliðið í haust.

,,Þetta hefur gerst ansi fljótt. Maður bjóst kannski ekki við að koma svona hratt inn í þetta. Þetta er kannski smá óvænt," sagði Jón Daði en frammistaða hans hefur vakið verðskuldaða athygli.

,,Það kemur meiri athygli þegar maður er að spila á stóra sviðinu en maður passar sig að hugsa ekki of mikið út í það. Maður heldur sér á jörðinni og nýtur þess að spila fótbolta."

Jón Daði hefur ekki náð sama dampi með Viking í Noregi og með landsliðinu. ,,Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá liðinu í heild sinni. Persónulega finnst mér ég hafa spilað vel en ég veit að ég get fengið miklu meira út úr mínu spili. Vonandi breytist það á næsta tímabili."

Jón Daði segist ekki vera farinn að íhuga að yfirgefa herbúðir Viking. ,,Ég er ekki að hugsa út í það eins og er. Ég á eitt ár eftir af samningi mínum. Ég er kominn með nýtt samningstilboð og maður tekur sér tíma í að skoða þau mál."

,,Þessi tvö landsliðs verkefni eru eftir og síðan er frí. Kannski kemur eitthvað upp á borðið og kannski ekki. Ef ekki þá er maður glaður að vera í Viking," sagði Jón Daði en frammistaða hans gegn Hollendingum í síðasta mánuði vakti mikla athygli.

,,Magnús Agnar umboðsmaður minn hefur sagt að það sé einhver áhugi en ég er ekkert að pæla í því og láta það trufla mig. Ég ætla að klára þessa skemmtilegu landsleiki og vonandi nær maður að spila vel þar."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner