Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. nóvember 2014 18:13
Elvar Geir Magnússon
Schweinsteiger mættur aftur til æfinga
Schweinsteiger er byrjaður að æfa á ný.
Schweinsteiger er byrjaður að æfa á ný.
Mynd: Getty Images
Góðar fréttir fyrir Bayern München.

Heimsmeistarinn Bastian Schweinsteiger hóf æfingar með Þýskalandsmeisturunum að nýju í dag. Þessi þrítugi miðjumaður hefur ekki tekið þátt í mótsleik síðan Þýskaland tryggði sér sigur á HM í sumar vegna meiðsla.

Schweinsteiger gat hafið æfingar með bolta í lok október og er nú farinn að æfa með liðsfélögum sínum og því ekki langt í að við sjáum hann aftur á vellinum.

Bayern er með fjögurra stiga forystu í þýsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner