Darijo Srna, varnarmaður króatíska landsliðsins, segir að samlandi sinn Mateo Kovacic verði að yfirgefa Inter ef hann ætlar að halda áfram að bæta sig.
Þessi tvítugi miðjumaður kom til Inter frá Dinamo Zagreb í janúar síðastliðnum en jafnvel þó hann hafi gegnt stóru hlutverki heldur liðinu áfram að ganga erfiðlega.
Srna telur að Kovacic, sem þykir gríðarlega efnilegur, ætti að fara til félags með betri framtíð.

,,Mateo er einn af bestu ungu leikmönnunum í Seríu A, en ef hann vill halda áfram að bæta sig þarf hann að fara til annars félags," sagði Srna við blaðamenn.
,,Inter er langt frá sínum gullaldarárum."
Athugasemdir