„Allt liðið er fullt sjálfstrausts," segir sóknarmaðurinn Viðar Örn Kjartansson sem raðaði inn mörkum fyrir Valerenga í Noregi eins og enginn væri morgundagurinn. Viðar er í landsliðshópnum sem býr sig undir leiki gegn Belgum og Tékkum.
„Ég átti gott tímabil og get vonandi hjálpað liðinu eitthvað í þessu verkefni. Ég hef mikla trú á sjálfum mér en þetta tímabil var miklu betra en ég gat látið mig dreyma um. Þetta var frábært."
„Vonandi fæ ég tækifærið gegn Belgum og ég verð klár í það. Það er mikill heiður að vera í landsliðshópnum."
Fyrir einu ári síðan var hann nýbúinn að klára tímabil með Fylki.
„Ég hef verið að taka stór skref í einu og þetta er mikil breyting fyrir mig. Ég verð að venjast því hratt og bæta mig mikið sem leikmaður. Ég ætla að halda áfram að bæta mig."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir