Ensku slúðurblöðin eru með slúður fyrir janúar gluggann og næsta sumar.
Luke Shaw (22) vill fá fimm milljónir punda frá Manchester United ef hann á að yfirgefa félagið í janúar. Newcastle hefur sýnt Shaw áhuga en 20 milljóna punda verðmiði hefur fælt liðið frá. (Sun)
Manchester United er í viðræðum við Marouane Fellaini (30) um nýjan samning. Fellaini verður samningslaus næsta sumar. (Sun)
Gareth Bale (28) hefur samið við Real Madrid um að yfirgefa félagið næsta sumar en Manchester United og Tottenham hafa bæði sýnt honum áhuga. (Diario Gol)
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur sagt að Olivier Giroud (31) verði áfram hjá félaginu og að hann fái fleiri tækifæri í byrjunarliði á næstunni. Giroud hafði sýnt áhuga á að fara frá Arsenal á láni fyrir HM næsta sumar. (Mirror)
Burnley hefur spurst fyrir um Nedum Onuoha (31) fyrirliða QPR. Varnarmaðurinn verður samningslaus í sumar. (Daily Mail)
Juventus er að íhuga tilboð í Hector Bellerin (22) varnarmann Arsenal. (Sun)
Henrik Mkhitaryan vill setjast niður við Jose Mourinho og ræða framtíð sína hjá Manchester United. Mkhitaryan hefur ekki verið í byrjunarliði í einn mánuð. (Daily Star)
Arsenal er í bílstjórasætinu í baráttunni um Sergio Romero (30) markvörð Manchester United. (Daily Star)
Torinio vill fá Giannelli Imbula (25) miðjumann Stoke en hann er í dag í láni hjá Toulouse í Frakklandi. (Stoke Sentinel)
Ki Sung-Yueng (28) hefur sett samningaviðræður sínar við Swansea á ís í bili til að einbeita sér að fallbaráttunni með liðinu. Sung-Yueng verður samningslaus næsta sumar. (Sky Sports)
Aston Villa vill kaupa markvörðinn Sam Johnstone (24) en hann hefur staðið sig vel á láni frá Manchester United í vetur. (Express)
Athugasemdir