Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. desember 2017 11:43
Magnús Már Einarsson
Gulli Gull: City fer 100% áfram
Mynd: Getty Images
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks og stuðningsmaður Manchester City, var kátur að ljóst varð að hans menn mæta Basel frá Sviss í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„City fer 100% áfram," sagði Gunnleifur sáttur þegar Fótbolti.net leitaði viðbragða hjá honum eftir dráttinn.

Basel endaði í 2. sæti í sínum riðli á eftir Manchester United. Basel hafði betur gegn United í leik liðanna í Sviss í síðasta mánuði.

„Þó svo að Basel hafi unnið United í Sviss, þá eiga þeir ekki séns í City," sagði Gunnleifur.

„Þetta er frábær dráttur fyrir City."

Leikirnir í 16-liða úrslitum
Juventus - Tottenham
Basel - Manchester City
Porto - Liverpool
Sevilla - Manchester United
Real Madrid - PSG
Shakhtar Donetsk - Roma
Chelsea - Barcelona
Bayern Munchen - Besiktas
Athugasemdir
banner
banner
banner