KR mætir FH í leik um 5. sæti Bose mótsins í Egilshöllinni í kvöld.
Leikurinn verður sýndur beint á SportTV og áhugavert að sjá hvaða tilraunir þjálfararnir gera á liðum sínum.
Leikurinn verður sýndur beint á SportTV og áhugavert að sjá hvaða tilraunir þjálfararnir gera á liðum sínum.
FH hefur ekki enn tekist að skora mark á mótinu eftir 1-0 tapleiki gegn bæði Fjölni og Stjörnunni.
KR hefur aftur á móti náð að skora tvö mörk hingað til, eitt í tapi gegn Víkingum og annað í jafntefli gegn Blikum.
Víkingur R. mætir Fjölni í leik um 3. sætið á miðvikudaginn og er úrslitaleikur milli Stjörnunnar og Breiðabliks á dagskrá á fimmtudaginn, en hann verður í Fífunni.
Leikur kvöldsins:
20:00 KR - FH (SportTV - Egilshöll)
Athugasemdir