Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 11. desember 2017 11:21
Magnús Már Einarsson
Man Utd til Spánar og Liverpool til Portúgal í 16-liða úrslitunum
Chelsea mætir Barcelona - Real Madrid leikur gegn PSG
PSG mætir Real Madrid.
PSG mætir Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Manchester United mætir spænska félaginu Sevilla í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en dregið var nú rétt í þessu. Liverpool mætir Porto og Tottenham á erfiðan leik framundan gegn ítölsku meisturunum í Juventus.

Real Madrid og PSG mætast í stórleik og Chelsea leikur við Barcelona í öðrum risaslag.

Manchester City fékk nokkuð þægilegan drátt en liðið mætir Basel frá Sviss.

16-liða úrslit
Juventus - Tottenham
Basel - Manchester City
Porto - Liverpool
Sevilla - Manchester United
Real Madrid - PSG
Shakhtar Donetsk - Roma
Chelsea - Barcelona
Bayern Munchen - Besiktas

Sigurvegarar riðlanna eiga seinni leikinn heima. Fyrri leikirnir verða 13.-14. febrúar og 20.-21. febrúar og seinni leikirnir 6.-7. mars og 13.-14. mars.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner