Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 11. desember 2017 08:14
Magnús Már Einarsson
Mourinho fékk líka mjólk yfir sig eftir leikinn - Arteta blóðugur
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Eins og komið hefur fram þá brutust út læti á meðal leikmanna og starfsfólks Manchester United og Manchester City eftir grannslaginn í gær.

Leikmenn Manchester City fögnuðu sigrinum ógurlega eftir leik ásamt starfsfólki sínu. Pep Guardiola, stjóri liðsins, neitaði hins vegar að taka þátt í fagnaðarlátunum af sama krafti.

Jose Mourinho, stjóri Manchester United, lét í sér heyra þegar hann var á leið í viðtöl eftir leik en honum þótti City sýna vanvirðingum með fagnaðarlátunum.

Mourinho og Ederson, markvörður City, rifust í kjölfarið á portúgölsku.

Læti brutust út og þar var bæði vatni og mjólk hellt yfir Mourinho!

Mikel Arteta, aðstoðarstjóri City, meiddist í látunum en í kjölfarið blæddi úr andliti hans.

Árið 2004 varð einnig allt vitlaust eftir leik Manchester United og Arsenal á Old Trafford en þá henti Cesc Fabregas pizzu í Sir Alex Ferguson, þáverandi stjóra United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner