Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. desember 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Skúli áfram hjá Leikni R. á láni (Staðfest)
Mynd: Blikar.is
Leiknir R. hefur fengið varnarmanninn Skúla R. Sigurz á láni frá Breiðabliki.

Skúli var í láni hjá Leikni síðastliðið sumar og hann verður áfram með liðinu í Inkasso-deildinni á næsta ári.

Skúli skoraði tvö mörk í tuttugu deildar og bikarleikjum með Leikni á síðasta tímabili en liðið fór þá í undanúrslit Borgunarbikarsins og endaði í fimmta sæti í Inkasso-deildinni.

Hinn 19 ára gamli Skúli framlengdi samning sinn við Breiðablik til þriggja ára áður en hann skrifaði undir lánssamninginn í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner