mán 11. desember 2017 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Sara Björk skoraði í toppslagnum
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Wolfsburg 3 - 1 Bayern
1-0 E. Pajor ('2)
2-0 Sara Björk Gunnarsdóttir ('5)
2-1 J. Damnjanovic ('8)
3-1 A. Popp ('32)
Rautt spjald: T. Wullaert, Wolfsburg ('64)
Rautt spjald: J. Damnjanovic, Bayern ('92)

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði í afar mikilvægum sigri Wolfsburg gegn FC Bayern í þýsku toppbaráttunni.

Wolfsburg er á toppnum eftir sigurinn með tveggja stiga forystu á Freiburg. Bayern kemur einu stigi þar á eftir.

Það eru tólf lið í deildinni og komast tvö efstu sætin í Meistaradeild Evrópu. Sara og stöllur unnu í fyrra en fyrir það vann Bayern tvö ár í röð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner