Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Olivier Giroud sé ekki á förum frá félaginu.
Giroud hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Arsenal en orðrómur hefur verið um að hann vilji leita annað til að fá meiri spiltíma fyrir HM í Rússlandi.
Eftir að Giroud kom inn á sem varamaður og jafnaði gegn Southampton í gær lofaði Wenger því að hann fái að spila meira.
„Hann er mikilvægur. Af hverju ættum við að missa mikilvægan leikmann? Hann mun byrja í fleiri leikjum. Þegar þú ert með marga góða leikmenn þá geta ekki allir spilað," sagði Wenger.

„Spurningin sem þú færð alltaf er af hverju fær þessi góði leikmaður ekki að spila? Svarið er að þá þyrftir þú að taka annan góðan leikmann út. Þetta er svo einfalt."
Athugasemdir