Olivier Giroud kom af bekknum og bjargaði stigi fyrir Arsenal í 1-1 jafntefli gegn Southampton um helgina.
Arsene Wenger var ósáttur með tímasóun Southampton í leiknum sem reyndi að halda í forystuna eftir að Charlie Austin gerði fyrsta mark leiksins strax á þriðju mínútu.
Arsene Wenger var ósáttur með tímasóun Southampton í leiknum sem reyndi að halda í forystuna eftir að Charlie Austin gerði fyrsta mark leiksins strax á þriðju mínútu.
„Á síðustu tveimur tímabilum hefur tímasóun orðið alvarlegt vandamál í enska boltanum," sagði Wenger.
„Leikmenn eiga að sýna íþróttinni virðingu með því að spila leikinn og það er í hlutverki dómarana að refsa fyrir óþarfa tímasóun. Þeir hafa völdin til að refsa fyrir þetta athæfi en nýta þau ekki nógu mikið.
„Seinni hálfleikurinn var spilaður á vallarhelmingi Southampton. Þegar þú nærð ekki að vinna þá er mikilvægt að tapa allavega ekki."
Athugasemdir