Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 12. janúar 2017 07:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Chicharito: MLS áhugaverðari en Kína
Chicharito segir Bandaríkin heilla sig meira en Kína
Chicharito segir Bandaríkin heilla sig meira en Kína
Mynd: Getty Images
Mexíkaninn Javier Hernandez, eða Chicharito segist frekar vilja spila í MLS deildinni í Bandaríkjunum heldur en að elta peningana til Kína.

Á meðan fjölmargir leikmenn fara til Kína fyrir gífurlega háar fjárhæðir þá vill Litla baunin frá Mexíkó frekar fara aftur til Norður-Ameríku og spila í MLS deildinni.

Chicharito spilar í dag með Leverkusen í Þýskalandi og hefuru verið orðaður við önnur lið, en hann vill sjálfur vera áfram hjá Leverkusen.

Chicharito segir það vera brjálæði að sjá alla þessa peninga í Kína en hann vill vera áfram í Evrópu til þess að spila í Meistaradeildinni.

„Aldrei segja aldrei" bætti Chicharito hins vegar við.
Athugasemdir
banner
banner