Manchester United hefur nýtt sér ákvæði í samningi Marouane Fellaini sem mun halda honum á Old Trafford til 2018.
Fyrri samningur miðjumannsins átti að renna út í sumar en Mourinho ber mikið traust til Belgans og vill halda honum lengur þrátt fyrir að hafa átt erfitt tímabil.
Stuðningsmenn Manchester United bauluðu á Fellaini í desember eftir að hann gaf Everton vítaspyrnu.
Fellaini skoraði gegn Hull í deildabikarnum á þriðjudag og fagnaði hann innilega og faðmaði Mourinho að sér.
„Hann veit hversu mikilvægur hann er fyrir mér" sagði Mourinho um Belgann hávaxna eftir leikinn gegn Hull
Athugasemdir