The Mirror heldur því fram að Manchester City ætli að hætta við að reyna að fá Alexis Sanchez frá Manchester United í þessum félagaskiptaglugga.
Sanchez verður samningslaus í sumar og undanfarnar vikur hefur hann verið sterklega orðaður við Manchester City.
Í gær bárust fréttir af því að Manchester United hafi blandað sér í baráttuna með 35 milljóna punda tilboði.
The Mirror segir núna að City ætli að hætta við að krækja í Sanchez þar sem félagið telur að heildarpakkinn kosti of mikið miðað við leikmann sem verður samningslaus í sumar.

Arsenal vill fá 35 milljónir punda fyrir Sanchez og umboðsmaður hans, Fernando Felicevich, vill fimm milljónir punda fyrir samninginn. Sanchez vill sjálfur 300 þúsund pund í laun á viku og City er nú sagt vera hætt við að krækja í Sílemanninn.
Athugasemdir