Fjölmargir fótboltamenn mættu á O2 Arena í London til að fylgjast með leik Boston Celtics og Philadelphia 76ers í NBA deildinni í gærkvöldi.
Þetta er í áttunda skipti sem NBA leikur fer fram í London.
Þetta er í áttunda skipti sem NBA leikur fer fram í London.
Auk leikmanna í ensku úrvalsdeildinni þá mætti Antoine Griezmann leikmaður Atletico Madrid til London til að sjá leikinn.
Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Manchester United, mætti einnig á leikinn.
Boston Celtics hafði betur 114-103 en hér að neðan má sjá myndir af nokkrum fótboltamönnum sem létu sjá sig í gær.
Bellerin og Sead Kolasinac ræða málin. Bakvið þá er Julian Draxler leikmaður PSG sem mætti frá Frakklandi.
Thibaut Courtois, Marcus Alonso, Andreas Christensen og Eden Hazard leikmenn Chelsea mættu á leikinn.
Christian Eriksen, Eric Dier, Jan Vertonghen, Moussa Dembele og Toby Alderweireld voru á meðal leikmanna Tottenham sem mættu.
Athugasemdir