Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 12. janúar 2018 14:07
Magnús Már Einarsson
Salah spilar gegn Manchester City
Salah í baráttunni.
Salah í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur staðfest að Mohamed Salah sé klár í slaginn fyrir leikinn gegn Manchester City á sunnudaginn.

Salah hefur misst af síðustu tveimur leikjum Liverpool vegna meiðsla á nára.

Egyptinn er markahæstur hjá Liverpool á tímabilinu og hann snýr aftur í liðið á sunnudag.

„Ef ekkert gerist óvænt gerist frá því núna þá kemur Mo til baka," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag.

„Hann er að æfa eðlilega. Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner