Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. janúar 2018 11:15
Elvar Geir Magnússon
Suarez reddaði Coutinho húsi við hliðina á sínu
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho.
Mynd: Getty Images
Luis Suarez lagði sitt á vogarskálarnar þegar Barcelona lagði allt kapp á að landa Philippe Coutinho frá Barcelona. Úrúgvæski sóknarmaðurinn setti mikla pressu á Brassann að koma til Barcelona og hjálpaði honum að finna heimili.

Suarez hafði tekið eftir því að hús við hliðina á hans var sett á sölu og var skjótur að bregðast við svo vinur sinn þyrfti ekki að búa á hóteli til að byrja með.

Coutinho ku vera hæstánægður með nýja húsið og segir að frá því sé magnað útsýni.

„Ég veit að Luis mun sjá til þess að okkur mun strax líða eins og við séum heima," segir Coutinho.

Cesc Fabregas átti heima í umræddu húsi þegar hann var í herbúðum Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner