Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. janúar 2018 21:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Van Dijk: Ótrúlegt augnablik
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher fyrrum leikmaður Liverpool tók viðtal fyrir Sky Sports við nýjasta leikmann Liverpool, Virgil van Dijk.

Meðal þess sem rætt er um er stjórinn Jurgen Klopp og hvernig upplifunin hafi verið af fyrsta leiknum á Anfield.

„Allir vita hvernig þjálfari hann er," sagði Van Dijk um þjálfara sinn. „Maður getur séð það í sjónvarpinu hversu líflegur hann er og hvernig hann smitar sjálfstraustinu til leikmanna."

„Ég held að þetta sé fullkominn stjóri fyrir mig, sem leikmaður elskar maður að hafa þjálfara eins og hann er."

Carragher ræddi við Van Dijk um fyrsta leikinn á Anfield sem var gegn Everton í enska bikarnum þar sem hann skoraði sigurmarkið þegar lítið var eftir af leiknum.

„Þetta var ótrúlegt augnablik, það voru nokkrir í fjölskyldunni búnir að segja að ég myndi skora í fyrsta leiknum, en að gera það á 84. mínútu var enn betra. Þetta er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma."
Athugasemdir
banner