Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 12. febrúar 2016 13:44
Elvar Geir Magnússon
15 ára stelpan var aðdáandi Johnson
Adam Johnson og kærasta hans, Stacey Flounders.
Adam Johnson og kærasta hans, Stacey Flounders.
Mynd: Getty Images
Fótboltamaðurinn Adam Johnson misnotaði aðstöðu sína þegar hann kyssti og snerti 15 ára stelpu kynferðislega. Opinberað hefur verið í dómssal að Johnson hafi gefið henni áritaða treyju í bíl sínum stuttu áður.

Umrædd stelpa, sem er skiljanlega ekki nafngreind, var gríðarlegur aðdáandi Johnson, hann var hennar átrúnaðargoð. Hún átti treyju með nafni hans og beið reglulega fyrir utan leikvang Sunderland, félags hans, til að fá mynd af sér með honum.

Johnson var vel meðvitaður um að stelpan var nýorðin 15 ára þegar hann hitti hana fyrir utan kínverskan veitingastað í janúar í fyrra. Hún er því skráð sem barn samkvæmt lögum.

Johnson er 28 ára en hann játaði fyrir dómi á miðvikudag að hafa brotið af sér . Hann viðurkennir kynferðisbrot með því að hafa kysst hana og snert á kynferðislegan hátt þegar þau hittust.

Sunderland tilkynnti í gær að samningi leikmannsins hafi verið rift en hann á 12 landsleiki að baki fyrir England. Þá rifti Adidas auglýsingasamningi við hann.

Þegar Johnson braut af sér var kærasta hans til langs tíma ólétt.

Stelpan 15 ára var upp með sér þegar Johnson vildi hitta hana. Þegar hún var í bílnum með honum tók hún leynilega myndir til að senda vinum sínum á Snapchat til sönnunar þess að hún væri með honum.

Johnson rétti henni áritaða treyju og sagðist vera mættur til að fá „þakkarkoss". Hann keyrði síðan með hana á einangrað svæði þar sem hann snerti hana kynferðislega og kyssti þar til henni fór að líða illa.

Skömmu eftir þennan fund þeirra sendi Johnson henni SMS-skilaboð en samskiptin voru á þessa leið:

Hann: Þetta var ekki svo slæmt er það? Lol
Hún: Nei haha
Hann: Haha held að við þurfum að fara í aftursætið næst lol
Hún: Haha já

Athugasemdir
banner
banner
banner