Búið er að staðfesta að Fabio Cannavaro hefur verið rekinn frá Sádí-arabíska félaginu Al Nassr eftir fjóra mánuði við stjórnvölinn.
Al Nassr er ríkjandi meistari í Sádí-Arabíu en liðið er í sjötta sæti deildarinnar sem stendur þegar aðeins tíu umferðir eru eftir af tímabilinu.
Al Nassr er ríkjandi meistari í Sádí-Arabíu en liðið er í sjötta sæti deildarinnar sem stendur þegar aðeins tíu umferðir eru eftir af tímabilinu.
Cannavaro tókst aðeins að vinna sex leiki af þeim fjórtán sem hann stýrði félaginu í og er hann rekinn rétt fyrir upphaf asísku Meistaradeildarinnar sem Al Nassr ætlar að leggja ofuráherslu á.
Cannavaro hefur áður stýrt Guangzho Evergrande í kínverska boltanum en Ítalinn var rekinn þaðan eftir sjö mánuði við stjórn.
Athugasemdir