Þýska blaðið Bild er með stórt skúbb í blaði dagsins en þar er staðfest að ein skærasta stjarna þýska boltans, Marco Reus, er með ofurfyrirsætunni Scarlett Gartmann sem hefur miklum vinsældum að fagna.
„Já það er satt - Ég og Scarlett erum saman," segir Reus í samtali við Bild.
Samkvæmt fréttinni hefur Reus, sem er 26 ára, verið með þessari 22 ára fyrirsætu síðan í desember.
Reus leikur fyrir þýska landsliðið og Borussia Dortmund en hann hefur ítrekað verið orðaður við brottför frá Dortmund. Ensk félagslið hafa sýnt honum mikinn áhuga.
Athugasemdir