Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. febrúar 2016 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Oscar: Vil vera hjá Chelsea í mörg ár
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Oscar hefur verið orðaður við brottför frá Chelsea þar sem kínversk félög hafa sýnt honum mikinn áhuga í síðustu félagsskiptagluggum.

Oscar sjálfur segist ekki vilja fara frá Chelsea en samningur hans við félagið gildir í þrjú og hálft ár í viðbót.

„Ég er ekki nema 24 ára gamall og mig langar að vera hjá Chelsea í mörg ár til viðbótar því ég elska að spila fyrir þetta félag," sagði Oscar við Chelsea TV.

„Ég elska stuðningsmennina og fjölskyldan mín nýtur sín hér. Ég hef enga ástæðu til þess að skipta um félag."

Ítalíumeistarar Juventus hafa einnig sýnt Oscar áhuga en hann segist ekki vera að einbeita sér að neinu öðru en að standa sig vel með Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner