Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. febrúar 2016 14:22
Magnús Már Einarsson
Van Gaal um Mourinho orðróm: Þetta er tilbúningur
Ekki sáttur.
Ekki sáttur.
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, segir að enskir fjölmiðlar séu að búa til sögur um framtíð sína.

Sterkur orðrómur er um að Jose Mourinho sé búinn að ganga frá samningi við Manchester United og að hann taki við liðinu í sumar.

„Ég hef sagt oft áður að margir fjölmiðlar eru að búa til sögur og þú þarft ekki að svara sögum sem eru búnar til," sagði Van Gaal á fréttamannafundi í dag.

Aðspurður hvort að fréttir um Mourinho séu ósannar og algjör tilbúningur þá svaraði Van Gaal: „Já."

Van Gaal sagði einnig að Manchester United þurfi ekki að gefa út stuðningsyfirlýsingu við sig þar sem að allar sögur um að Mourinho sé að taka við séu ósannar.
Athugasemdir
banner
banner
banner