Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 12. febrúar 2018 19:00
Ingólfur Stefánsson
Bayern býður upp á að horfa á leiki úr hótelherbergi
Mynd: Bayern Munich
Bayern Munich mun á næstunni bjóða stuðningsmönnum sínum upp á að horfa á leiki frá hótelherbergi sem byggð verða inn í leikvang félagsins.

Hótelherbergin eru hluti af samningi félagsins við Marriot hótel.

Herbergin bjóða upp á magnað útsýni yfir Allianz völlinn og gestir fá einnig að nýta sér sérstakan kokteilbar.

Ekki hefur verið tilkynnt hvað hótelherbergin munu kosta en Bayern munu bjóða heppnum stuðningsmönnum að prufukeyra herbergin þegar erkifjendurnir í Borussia Dortmund mæta á Allianz völlin 31. mars næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner