Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. febrúar 2018 10:00
Magnús Már Einarsson
Guardiola: De Bruyne getur verið valinn bestur í heimi
Geggjaður.
Geggjaður.
Mynd: Getty Images
Kevin de Bruyne getur unnið Gullbolta Evrópu fyrir að vera leikmaður ársins í heiminum að sögn Pep Guardiola, stjóra Manchester City.

„Ég er ekki í vafa um það," sagði Guardiola eftir 5-1 sigurinn á Leicester um helgina.

De Bruyne lagði upp þrjú mörk í leiknum og Guardiola telur að hann geti verið valinn bestur í heimi ef hann heldur uppteknum hætti.

„Til að koma til greina þá þarftu að vinna Meistaradeildina og standa þig á seinni stigum keppninnar."

„Það er erfitt að finna betri leikmann í Evrópu eins og hann spilaði gegn Leicester."

Athugasemdir
banner
banner
banner