Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. febrúar 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Hafði klikkað á 43 skotum í röð fyrir markið gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Matt Ritchie, kantmaður Newcastle, skoraði sigurmarkið gegn Manchester United í gær.

Ritchie hafði ekki verið öflugur fyrir framan markið á tímabilinu því hann hafði átt 43 markskot í röð án þess að ná að skora.

Enginn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hafði klikkað á jafnmörgum skotum í röð á tímabilinu.

Wilfred Ndidi, miðjumaður Leicester, á nú þann heiður að vera með flest skot í röð án marks en hann hefur átt 34 markskot á tímabilinu án þess að skora.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner