Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. febrúar 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Njarðvík heimsækir Íslandsmeistarana
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Íslandsmeistararnir í Val fá Njarðvíkinga í heimsókn í eina keppnisleik dagsins hér á landi.

Þetta verður fyrsti leikur beggja liða í Lengjubikarnum í ár en menn eru nokkuð heitir eftir Reykjavíkurmótið og Fótbolta.net mótið.

Valsörum gekk ekki sérlega vel í Reykjavíkurmótinu þar sem þeir töpuðu fyrir Fjölni og Fylki, sem mættust síðar í úrslitum.

Njarðvík endaði þá í þriðja sæti B-deildar Fótbolta.net mótsins og fór gegnum mótið taplaust.

Það verður því hart barist um stigin þrjú í Hlíðunum í dag.

Lengjubikar karla - A deild - Riðill 1
18:00 Valur-Njarðvík (Valsvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner