Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. febrúar 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Marcelo: Ég held að Neymar komi í Real Madrid
Neymar á sprettinum.
Neymar á sprettinum.
Mynd: Getty Images
Marcelo, vinstri bakvörður Real Madrid, hefur trú á að Neymar muni koma til félagsins einn daginn.

Neymar varð dýrasti leikmaður sögunnar þegar PSG keypti hann frá Barcelona síðastliðið sumar.

Sögusagnir eru um að Neymar sé ósáttur hjá PSG og Real Madrid hefur verið nefndur sem mögulegur næsti áfangastaður. Marcelo hefur mikla trú á að Neymar endi hjá Real einn daginn.

„Hann myndi passsa inn í lið Real Madrid, það er pottþétt. Það væri frábært ef hann kæmi til Real Madrid," sagði Marcelo.

„Að mínu mati verða bestu leikmennirnir að spila hjá þessu félagi. Ég held að Neymar eigi eftir að spila með Real Madrid einn daginn."
Athugasemdir
banner
banner