Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. mars 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Bruce: Ánægður fyrir hönd Birkis
Mark helgarinnar í Championship
Birkir skoraði frábært mark um helgina.
Birkir skoraði frábært mark um helgina.
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Aston Villa, hrósaði Birki Bjarnasyni sérstaklega eftir 4-1 sigur liðsins á toppliði Wolves í Championship deildinni á laugardaginn.

Birkir kom inn á sem varamaður á 75. mínútu og skoraði frábært mark eftir einstaklingsframtak tíu mínútum síðar. Markið hefur verið valið mark helgarinnar í Championship deildinni.

„Hann skoraði frábært mark í dag. Ég er ánægður fyrir hans hönd," sagði Bruce eftir leik.

Birkir vann sér sæti í byrjunarliði Aston Villa í byrjun árs og stóð sig vel á miðjunni hjá liðinu. Hann hefur hins vegar verið á bekknum í síðustu leikjum.

„Birkir hefur verið óheppinn hvað varðar val á liði að undanförnu.
Ég valdi hann ekki í liðið gegn Bimingham og síðan höfum við breytt leikkerfinu í útileikjum okkar,"
sagði Bruce.


Athugasemdir
banner
banner
banner