Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. mars 2018 11:11
Elvar Geir Magnússon
Freyr Alexandersson verður með Pepsi-mörkunum í sumar
Freyr verður með Pepsi-mörkunum.
Freyr verður með Pepsi-mörkunum.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins og fyrrum þjálfari Leiknis í Breiðholti, verður einn af álitsgjöfum í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í sumar.

Þetta var tilkynnt á Twitter-svæði þáttarins í dag.

Hörður Magnússon er áfram umsjónarmaður þáttarins en álitsgjafarnir verða sex talsins og verða kynntir í vikunni.

Boðaðar hafa verið að miklar breytingar verði á þættinum, meðal annars þegar kemur að grafík og leikgreiningum.

Þá munu leikmenn og þjálfarar koma í settið en Rúnar Kristinsson verður gestur í fyrsta þætti.





Athugasemdir
banner
banner
banner