Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. mars 2018 10:40
Elvar Geir Magnússon
KA hefur birt mörkin úr stórsigrinum gegn Breiðabliki
Elfar Árni hefur raðað inn mörkum í vetur.
Elfar Árni hefur raðað inn mörkum í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA TV hefur birt fréttapakka eftir helgina en þar má meðal annars sjá mörkin úr fótboltaleikjum KA og Þórs/KA í Lengjubikarnum um helgina.

Öflugt framtak hjá félaginu. KA vann Breiðablik 4-0 í Lengjubikar karla en Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði tvíveigs. Daníel Hafsteinsson og Aleksandar Trninic komust einnig á blað.

KA hefur unnið alla fjóra leiki sína í Lengjubikarnum og líta vel út í aðdraganda Pepsi-deildarinnar.

Mörkin eru sýnd eftir 53 sekúndur í myndbandinu hér að neðan en í því er farið yfir helgina hjá KA.

Einnig er sýnt úr 1-1 jafntefli Þórs/KA og Breiðabliks í Lengjubikar kvenna.



Tveir Bikarmeistaratitlar í blakinu, frábær sigur í Lengjubikarnum og flott frammistaða í Coca-Cola bikarnum standa uppúr í örfréttapakka vikunnar, kynnið ykkur málið!
Athugasemdir
banner
banner
banner