Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. mars 2018 19:58
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Samúel Kári kom við sögu í sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristiansund 0 - 1 Vålerenga
0-1 Sam Johnson ('63)

Vålerenga heimsótti Kristiansund í fyrstu umferð tímabilsins í norska boltanum.

Leikurinn var tíðindalítill og mikið um baráttu, en liðin enduðu bæði um miðja deild í fyrra, með eins stigs mun.

Sam Johnson skoraði fyrir Vålerenga í síðari hálfleik og brenndi Benjamin Stokke af vítaspyrnu fyrir heimamenn skömmu síðar.

Samúel Kári Friðjónsson kom inn í uppbótartímanum og fékk að spila síðustu fimm mínútur leiksins.

Samúel er nýlega orðinn 22 ára og hefur verið að gera fína hluti hjá Vålerenga eftir þrjú ár innan herbúða Reading.
Athugasemdir
banner