Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 12. mars 2018 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu sturlað jöfnunarmark Ciro Immobile
Mynd: Getty Images
Lazio gerði óvænt 2-2 jafntefli við Cagliari er liðin mættust í ítalska boltanum á sunnudaginn.

Cagliari komst tvívegis yfir í leiknum og náðu gestirnir frá Róm að rjúfa varnarmúr heimamanna nokkrum sinnum en inn vildi boltinn ekki.

Þegar tíminn virtist algjörlega á þrotum tók Ciro Immobile upp á því að skora stórkostlegt mark.

Þetta var 24. deildarmark Immobile á tímabilinu og er hann því búinn að jafna markahæstu menn helstu deilda Evrópu.

Lionel Messi er þar með 24 mörk, rétt eins og Mohamed Salah, Harry Kane og Edinson Cavani. Robert Lewandowski er búinn að gera 23 fyrir Bayern.







Athugasemdir
banner
banner
banner
banner