Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 12. mars 2018 22:06
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Betis nálgast Evrópudeildina
Mynd: Getty Images
Alaves 1 - 3 Real Betis
0-1 Loren ('23)
0-2 J. Garcia ('44)
1-2 R. Sobrino ('67)
1-3 Loren ('78)

Real Betis vann góðan útisigur gegn Alaves í eina leik kvöldsins í spænska boltanum.

Gestirnir voru tveimur mörkum yfir í hálfleik en Ruben Sobrino minnkaði muninn fyrir heimamenn í þeim síðari.

Loren innsiglaði sigur Betis á lokakafla leiksins en hann skoraði einnig fyrsta markið.

Betis er fjórum stigum frá evrópusæti á meðan Alaves er ellefu stigum fyrir ofan fallsæti þegar tíu umferðir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner