Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. apríl 2014 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Chamberlain vill vinna fyrsta titilinn
Chamberlain hefur fengið að spila reglulega á tímabilinu
Chamberlain hefur fengið að spila reglulega á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Alex Oxlade-Chamberlain vonar að Arsenal takist að fara alla leið í enska FA bikarnum.

Arsenal mætir Wigan í undanúrslitum í dag og kemst, með sigri, í úrslitaleik gegn annað hvort Hull City eða neðrideildarliði Sheffield United.

,,Það er gott að byrja að vinna aftur, að vinna bikar væri frábært, að mæta í keppni sem liðsheild og vinna hana saman væri frábær reynsla," sagði Chamberlain.

,,Það væri klárlega eitthvað til að byggja á og myndi auka sjálfstraust hópsins til munar í framtíðinni.

,,Þegar maður er búinn að vinna þennan fyrsta titil þá byggist sjálfkrafa upp sjálfstraust og maður öðlast ómetanlega reynslu."

Athugasemdir
banner
banner
banner