Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. apríl 2014 13:21
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: QPR kláraði Nottingham á lokakaflanum
Yossi Benayoun skoraði og lagði upp í stórsigri á Nottingham Forest
Yossi Benayoun skoraði og lagði upp í stórsigri á Nottingham Forest
Mynd: Getty Images
QPR 5 - 2 Nottingham Forest
1-0 Yossi Benayoun ('2)
1-1 Jamaal Lascelles ('37)
2-1 Junior Hoilett ('43)
2-2 Matt Derbyshire ('75)
3-2 Nedum Onuoha ('84)
4-2 Ravel Morrison ('90)
5-2 Bobby Zamora ('92)

QPR fékk Nottingham Forest í heimsókn í fyrsta leik dagsins í ensku Championship deildinni og vann 5-2.

QPR er svo gott sem búið að tryggja sér sitt sæti í umspilinu um að komast í ensku Úrvalsdeildina en Nottingham er nú fjórum stigum frá umspilssæti.

Yossi Benayoun kom QPR yfir snemma í leiknum og eftir jöfnunarmark Jamaal Lascelles kom Junior Hoilett heimamönnum yfir á nýjan leik, eftir stoðsendingu frá Benayoun.

Matt Derbyshire jafnaði í síðari hálfleik en á lokakafla leiksins skoruðu heimamenn þrjú mörk, þar sem Nedum Onuoha, Ravel Morrison og Bobby Zamora gerðu eitt mark hver.
Athugasemdir
banner
banner
banner