Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. apríl 2014 19:01
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Alfreð skoraði í sigri Heerenveen á Go Ahead Eagles
Hollenski
Alfreð Finnbogason skorar og skorar
Alfreð Finnbogason skorar og skorar
Mynd: Getty Images
Heerenveen sigraði Go Ahead Eagles með tveimur mörkum gegn engu í hollensku deildinni í dag en Alfreð Finnbogason var auðvitað á skotskónum.

Joost van Aken kom Heerenveen yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en Alfreð bætti við öðru marki þegar um það bil fimmtán mínútur voru eftir af síðari hálfleik.

Lokatölur því 0-2 Heerenveen í vil sem situr í sjötta sæti deildarinnar með 51 stig sem stendur á meðan Go Ahead Eagles er með 37 stig í tólfta sæti.

Alfreð er kominn með 27 mörk í hollensku úrvalsdeildinni eða fimm mörkum á undan næsta manni, Graziano Pelle, sem er með 22 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner