Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. apríl 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía - Leikir dagsins: Roma mætir Atalanta
Roma þarf að treysta á að Juventus tapi átta stigum af síðustu átján í titilbaráttunni
Roma þarf að treysta á að Juventus tapi átta stigum af síðustu átján í titilbaráttunni
Mynd: Getty Images
AS Roma á heimaleik gegn Atalanta í ítölsku deildinni í kvöld en liðið er átta stigum frá toppliði Juventus þegar sex umferðir eru eftir.

Roma er þá tólf stigum frá Napoli sem er í þriðja sætinu og því svo gott sem búið að tryggja sér annað sæti deildarinnar, sem gefur þátttökurétt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Sassuolo tekur á móti Cagliari í fyrri leik dagsins en bæði lið eru í fallbaráttu á lokasprettinum.

Heimamenn í Sassuolo eru nýliðar í deildinni og þremur stigum frá öruggu sæti en Cagliari er sjö stigum frá fallsæti.

Leikir dagsins:
16:00 Sassuolo - Cagliari
18:45 Roma - Atalanta
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner