Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 12. apríl 2014 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Jurgen Klopp: Spiluðum nánast fullkominn leik
Jurgen Klopp
Jurgen Klopp
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund í Þýskalandi, var auðvitað ánægður með 0-3 sigurinn á Bayern München í þýsku deildinni í dag.

Dortmund fór afar illa með Bayern á Allianz-Arena í dag en Henrikh Mkhitaryan, Marco Reus og Jonas Hofmann sáu til þess að sigurinn yrði stærsti ósigur Pep Guardiola frá upphafi þjálfaraferils hans.

,,Ef þú vinnur Bayern með þremur mörkum gegn engu, þá er hægt að tala um að liðið hafi sýnt fram á fullkomna spilamennsku," sagði Klopp.

,,Við erum núna að einbeita okkur að því að komast í bikarúrslit. Þegar við komumst þangað þá skiptir engu máli við hverja við spilum," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner