Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. apríl 2014 12:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Soccerway 
Klopp þráir sigur gegn Bayern
Klopp vill vinna nýkrýnda meistara Bayern
Klopp vill vinna nýkrýnda meistara Bayern
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp segir sína menn ætla að spila til að næla sér í þrjú stig á Allianz Arena, heimavelli Bayern München, um helgina.

Bayern er búið að vinna deildina og tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu eftir meistarakrýninguna.

Klopp segir leikinn gegn Bayern mikilvægan, þó að Dortmund eigi leik gegn Wolfsburg í undanúrslitum þýska bikarsins á þriðjudeginum.

,,Ég verð að sjá til hverjir verða tilbúnir í slaginn gegn Bayern München á laugardaginn, ég hef ekki enn ákveðið byrjunarliðið," sagði Klopp.

,,Næsta þriðjudag lýkur fjórum erfiðum vikum fyrir okkur en við ætlum að mæta til München og spila upp á þrjú stig.

,,Ég veit ekki hvaða leikmenn Bayern mun nota á miðvikudaginn í bikarnum gegn Kaiserslautern, það verður líklega ekki sérlega krefjandi leikur."

Athugasemdir
banner
banner